|
3. febrúar 2010 11:54 |
Lífshlaupið hafið í Heiðarskóla |
Stórir og smáir, starfsfólk og nemendur hófu þátttöku sína í "lífshlaupinu" í dag klukkan 10:00 með því að fara saman í göngutúr í góða veðrinu. Sumir gengu niður að Melkotsafleggjara og til baka en aðrir létu sér nægja að ganga niður að Leirárbrú og til baka. Mikill hugur er í fólki að standa sig vel í keppninni og vinna til verðlauna eins og í fyrra. |
| |
3. febrúar 2010 11:53 |
Sundlaugar"samkvæmi" |
Föstudaginn 5.febrúar ætlum við að hafa sundlaugar"samkvæmi" fyrir unglingadeildina í Heiðarborg. Fjörið byrjar kl. 17:30 og stendur til 20:30 athugið að það þurfa ekki allir að fara í laugina. Íþróttahúsið verður líka opið og einnig verður borðtennisborð á staðnum. Sjoppan verður opin en þess utan verður ekki boðið upp á neitt matarkyns þannig að það getur verið gott að borða áður eða taka með nesti.
Samúel Þorsteinsson
|
| |
2. febrúar 2010 09:32 |
Veikindi |
Við minnum góðfúslega á að ef nemendur eru veikir þarf að tilkynna það daglega til skólans, annars telst það óheimil fjarvist.
Annað hvort er hægt að hringja í númer skólans eða senda tölvupóst til skólastjórnenda og eða umsjónarkennara. |
| |
27. janúar 2010 13:39 |
Keppt í undankeppni Samfés |
Fulltrúar Heiðarskóla, stúlkurnar Sigrún Bára Gautadóttir, Íris Jana Ásgeirsdóttir og Aníta Rún Óskarsdóttir, eru nú á leið í Grundarfjörð þar sem undankeppni Samfés v/Vesturlands mun fara fram seinna í dag.
Þær stöllur ætla að flytja lag Leonard Cohen "Haleluja" en þær hafa íslenskað textann sjálfar.
Aðalkeppnin verður síðan eftir nokkrar vikur.
Við óskum þeim góðs gengis. |
| |
27. janúar 2010 13:32 |
Fullskipað í skólaráðið |
Skólaráð hefur nú verið fullskipað. Til viðbótar við þá sem áður hafa verið til kallaðir lítur ráðið svona út; Dagný Hauksdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir fulltrúar foreldra, Helga Harðardóttir og Katrín Rós Sigvaldadóttir fulltrúar kennara, Birgitta Guðnadóttir fulltrúi almennra starfsmanna, Ásgeir Kristinsson fulltrúi grenndarsamfélags og foreldra.
Fulltrúar nemenda eru: Halldór Logi Sigurðarson úr 9. bekk og Sara Eir Árnadóttir úr 10. bekk, til vara eru Jökull Rúnar Sigurðarson úr 10. bekk og Íris Jana Ásgeirsdóttir úr 9. bekk.
Næsti fundur ráðsins er áætlaður þriðjudagur 23. febrúar klukkan 17:00 |
| |
20. janúar 2010 13:31 |
Tónlist fyrir alla |
Við fengum í dag heimsókn frá verkefninu "Tónlist fyrir alla" en það er árviss viðburður í skólastarfinu. Að þessu sinni voru það Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari. Þau Laufey og Páll hafa á undanförnum árum komið fram á fjölda tónleika í grunnskólum um allt land.
Þau kynntu hljóðfærin sín, og fóru síðan í smá tónlistarlegt "ferðalag", byrjuðu á Ítalíu, landi fiðlunnar og léku tónlist eftir Vivaldi og fiðlusnillinginn Paganini.
Þau komu við á Spáni, landi gítarsins, og spiluðu m.a. verk eftir Sarasate, Ibert (lag með spænskum áhrifum)
Síðan enduðu þau í Argentínu með seiðandi tango. Að lokum sungu allir saman lagið ´"Á Sprengisandi"
Flytjendurnir.
Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson hafa starfað saman frá árinu 1986. Þau hafa haldið tónleika víðs vegar um landið sem og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Á efnisskrá þeirra eru verk frá barokk-tímanum til okkar daga og íslensk tónskáld hafa samið verk fyrir þau sérstaklega.
|
| |
19. janúar 2010 11:49 |
Elsti árgangur Skýjaborgar í heimsókn |
Væntanlegir grunnskólanemendur úr leikskólanum komu í heimsókn í morgun og tóku þátt í skólastarfi með 1. bekk fram til hádegis. Í þessum komandi 1. bekk eru 7 nemendur. |
| |
13. janúar 2010 12:08 |
Skólaráð Heiðarskóla |
Valdir hafa verið fulltrúar í Skólráð Heiðarskóla
Frá skólanum sitja í ráðinu Katrín Rós Sigvaldadóttir, Helga Harðardóttir og Birgitta Guðnadóttir. Úr foreldrafélaginu sitja Dagný Hauksdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir
Skólastjóri stýrir skólaráðinu.
Boðað er til fundar þriðjudaginn 19 janúar klukkan 17:00 í Heiðarskóla |
| |
11. janúar 2010 15:37 |
7. bekkur í skólabúðir |
7. janúar 2010 10:19 |
Nýr náttúrufræðikennari |
6. janúar 2010 13:48 |
Lestrarátak |
5. janúar 2010 09:58 |
Skólastarf á nýju ári |
18. desember 2009 15:42 |
Gleðileg jól |
16. desember 2009 13:38 |
Litlu jólin og jólaleyfi |
14. desember 2009 12:20 |
Frá foreldrafélagi Heiðarskóla |
11. desember 2009 14:22 |
Myndir |
11. desember 2009 11:01 |
Þemadagar og 1. des skemmtun |
9. desember 2009 12:27 |
Jólaball á Varmalandi |
4. desember 2009 09:21 |
Jólaföndur foreldrafélags Heiðarskóla |
2. desember 2009 10:31 |
Leik og sönghæfileikaríkir nemendur |
30. nóvember 2009 11:22 |
Nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð!!!! |
27. nóvember 2009 14:40 |
Skemmtun í Heiðarskóla |
24. nóvember 2009 14:53 |
Styttist í 1. des.skemmtun |
24. nóvember 2009 08:49 |
Slökkviliðið og Rauði krossinn í heimsókn |
eldri fréttir
|